Stjórnmál:
Þorgerður. Katrín skrifaði:
„Mér þykir ofboðslega vænt um Jón Gnarr og það breytist ekki þótt hann hafi nú ákveðið að starfa utan þingflokks Viðreisnar.
Við Jón höfum átt gott samstarf, oft hlegið mikið og við deilum áfram mikilvægum gildum og framtíðarsýn. Til dæmis því sem stendur á þessari geggjuðu derhúfu hans.
Ég hefði auðvitað kosið að hafa Jón áfram í þingflokknum. En ég virði ákvörðun hans og þykir vænt um að hann ætli áfram að styðja ríkisstjórnina og þau verkefni sem við höfum tekið okkur fyrir hendur. Mér þykir líka vænt um að hann haldi áfram í Viðreisn og hann er að sjálfsögðu alltaf velkominn aftur í þingflokkinn okkar.
Stjórnmál snúast um fólk. Og þótt leiðir skilji á einum vettvangi þýðir það ekki að vináttan geri það líka.
Takk fyrir samstarfið, kæri Jón.“