Mynd: RÚV.

Greinar

„Kærleiksheimilið“ að Efsaleiti 1

By Miðjan

June 09, 2026

Umræðan Ragnar Önundarson skrifaði eftirfarandi:

„Rúv er ríkisstofnun, þar sem starfsfólkið gengur sjálfala. Í tímans rás hefur orðið til sérkennilegt „kærleiksheimili“, þar sem fólk hefur lengi getað þjónað lund sinni að vild. Störf erfast jafnvel. Hin undarlega þulafjölskylda er skýrasta dæmið. Enn eru eldri starfsmenn að koma afkvæmum sínum í varanlegt skjól innan Rúv, svo þau þurfi ekki að leita sér atvinnu nokkrum sinnum á lífsleiðinni, eins og aðrir. Afleiðingin er mikið tilfinningalegt flækjustig, sem hamlar getu stjórnandans til að móta reksturinn að sínum vilja.

Rekstur þessa kærleiksheimilis er á kostnað almennings. Þó að skipt sé öðru  hvoru um útvarpsstjóra ná þeir ekki að sigrast á varnarmúrum fjölskyldubanda og mægða. Í venjulegum fyrirtækjum fer forstjórinn með æðsta vald og er þá mönnunin eitt allra mikilvægasta verkefnið. Hjá Rúv hefur starfsfólkið náð að tryggja sér öryggi innan varnarmúra kærleikans.“