
Jóhann Þorvarðarson skrifar:
Í leit að svörum verður vart horft fram hjá íslensku krónunni. Hún hefur verið stór áhrifaþáttur í þeirri verðbólgu og þeim ofurvöxtum sem almennir borgarar hafa þurft að búa við alltof lengi.
„Hversu oft ætlar þessi forystumaður verkalýðshreyfingarinnar á Vesturlandi að hafna lærdómi sögunnar og hagsögu Íslands? Hversu oft ætlar hann að kyrja sama sálminn um að við getum þetta, að við þurfum ekki annan gjaldmiðil og að eini skorturinn sé vilji til verka?
Nú þegar Seðlabankinn hækkar vexti enn eina ferðina er hann mættur með hljóðnemann. Þar er hann á útopnu við að þylja sína gömlu möntru um að hann einn kunni skil á sannleikanum.
Þetta eru stór orð frá forystumanni sem sjálfur er hluti af kerfisvanda sem hefur átt þátt í að viðhalda verðbólgu og háum vöxtum. Í hans huga virðast allir aðrir en hann sjálfur annað hvort vera treggáfaðir eða getulausir. Þar er átt við þá sem hafa starfað að bættum kjörum launafólks innan verkalýðshreyfingarinnar, setið á Alþingi eða gegnt ráðherraembættum undanfarna áratugi.
Og hvort tími hans í forystu launafólks á Vesturlandi sé ekki einfaldlega liðinn.
Af málflutningi hans mætti helst ráða að hann sé einn þeirra fáu sem hafi séð ljósið á meðan aðrir hafi brugðist. Slík sjálfsupphafning er hins vegar ekki sannfærandi rök.
Þessum útgefanda aflátsbréfa væri nær að stíga niður úr prédikunarstólnum og svara nokkrum grundvallarspurningum. Hvers vegna hefur uppsöfnuð verðbólga á Íslandi verið um 255% frá aldamótum á meðan hún hefur verið um 63% í Danmörku? Hvers vegna hafa stýrivextir að jafnaði verið um 8% hér á landi á sama tímabili en aðeins um 2,5% í Danmörku?
Í leit að svörum verður vart horft fram hjá íslensku krónunni. Hún hefur verið stór áhrifaþáttur í þeirri verðbólgu og þeim ofurvöxtum sem almennir borgarar hafa þurft að búa við alltof lengi.
Lausnin felst ekki í afneitun eða því að endurtaka sífellt að Ísland þurfi ekki nýjan gjaldmiðil þegar landið kann einmitt að þurfa á honum að halda. Um það má ræða, en ekki með því að afskrifa reynslu liðinna áratuga.
Afneitun og sífelldar ásakanir um að aðrir séu svo lélegir hljóta að kalla á að hinn sami horfi alvarlega í spegil og spyrji sig hvort hann sé ekki hluti af vandanum. Og hvort tími hans í forystu launafólks á Vesturlandi sé ekki einfaldlega liðinn.
Sá sem telur sig halda einn á kaleiki sannleikans er sjaldnast líklegur til stórra sigra.“