Greinar

„Keppa við landslið þjóðarmorðingja“

By Miðjan

August 28, 2025

Kristinn Hrafnsson skrifaði:

„Ég hélt í alvöru að landsliðsmaðurinn í körfubolta hefði brotnað saman og grátið af skömm þegar hann tilkynnti liðsfélögunum að þeir væru að fara að keppa við landslið þjóðarmorðingja. Það var ekki svo. Þessi svívirða heldur áfram og brýtur gegn öllu velsæmi. Skammist ykkar og öll ykkar hreyfing. Aðalmaðurinn í liðinu sem þið eruð að mæta mun víst vera Deni Avdija. Læt fylgja mynd af honum stoltum í einkennisbúningi Ísraelshers þeim sama og myrti á dögunum hjálparstarfsmenn og blaðamenn, hefur þegar myrt tugþúsundir palestínskra barna og er að svelta hundruð þúsunda í manngerðri hungursneyð.“