- Advertisement -

Kipptu sér ekki upp við Panama-skjölin

Þeir sögðust einir hafa vald á efnahagsmálum og keyrðu landið lóðbeint í kaf.

Þorvaldur Gylfason.

Þorvaldur Gylfason skrifar fína grein í Fréttablaðið í dag. Þar segir til dæmis:

„Vandi stjórnmálanna er ekki bundinn við Bandaríkin og Bretland og ekki heldur við hægri flokka. Skemmdin er víðtækari en svo. Evrópskir jafnaðarflokkar eru nú margir líkt og flokkar frjálslyndra í miklum vanda og fylgi þeirra hefur dalað eftir því. Á sænska þinginu voru flokkarnir lengi fimm og eru nú átta. Á þýzka þinginu voru þeir þrír og eru nú sex. Hér heima voru þingflokkarnir lengi fjórir – fjórflokkurinn! – og eru nú átta. Panama-skjölin klufu Framsókn í tvennt.

Sjálfstæðismenn kipptu sér þó ekki upp við Panama-skjölin, depluðu ekki auga, heldur varð ágreiningur um ESB til að kljúfa flokkinn þegar Evrópusinnar stofnuðu Viðreisn. Nú láta þjóðremblar flokksins ófriðlega. Þeir gera ágreining um orkumál – menn sem hafa áratugum saman sólundað sameignum þjóðarinnar til sjós og lands í hendur glæpamanna sem keyrðu bankana í kaf, útvegsmanna og erlendra orkukaupenda á kostnað réttra eigenda, fólksins í landinu. Fari sem horfir mun Sjálfstæðisflokkurinn skiptast upp í enn smærri og meðfærilegri einingar.“

Og aðeins síðar:

„Sjálfstæðismenn stjórnuðu landinu samfleytt frá 1991 til 2009, fyrst með Framsókn og síðan Samfylkingu. Þeir sögðust einir hafa vald á efnahagsmálum og keyrðu landið lóðbeint í kaf.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: