Stjórnmál

Kjósendur verða að fleygja Samherjaflokkunum út af þingi í haust

By Gunnar Smári Egilsson

May 03, 2021

Gunnar Smári skrifar:

Aðeins fáeinum vikum eftir sýningu færeyska sjónvarpsins á þáttunum um Samherja, sem nefndust Hinir óseðjandi, kemur þessi frétt.

Meira en einu og hálfu ári eftir sýningu íslenska sjónvarpsins á sínum Samherjaþætti er ekkert að frétta frá saksóknara eða skattrannsóknastjóra. Bara ekki neitt.

Það er skelfilegt hvernig komið er fyrir íslenska lýðveldinu, því hefur verið breitt í verstöð Samherja þar sem stjórnvöld beygja sig fyrir ofbeldismanninum.

Kjósendur verða að fleygja Samherjaflokkunum út af þingi í haust. Kosningarnar eiga að snúast um hvort við viljum að Ísland verði eign Samherja eða hvort við eigum að byggja hér upp réttlátt og heilbrigt samfélag.