Fréttir

Klókt að taka allt bókhald Samherja

By Gunnar Smári Egilsson

November 12, 2019

Gunnar Smári skrifar:

Þar sem mútur eru ekki frádráttarbærar frá skatti væri klókt af skattrannsóknarstjóra að taka bókhald og öll gögn Samherja í nótt. Þangað má örugglega sækja hundruð milljóna í ríkissjóðs, bara af þeim málum sem Kveikur/Stundin eru að fjalla um. Svo má senda málið til saksóknara, en ekki er hægt að greiða stórar mútur út úr fyrirtækjum án þess að falsa bókhald.