Stjórnmál

Klýfur Íris Sjálfstæðisflokkinn í annað sinn?

By Miðjan

April 14, 2026

Stjórnmál: Íris Róbertsdóttir, sem klauf Sjálfstæðisflokkinn fyrir átta árum er sennilegast að endurtaka verkið. Hún lagði niður H-listann sinn og er genginn aftur til liðs við XD. Oddvitinn, Eyþór Harðarson, hefur sagt Írisi vera bæjarstjóraefni XD í komandi kosningum.

Þetta féll víst í súran jarðveg hjá stórum hópi Sjálfstæðismanna sem geta ekki fyrirgefið klofninginn, svikin, fyrir átta árum. Þetta veldur því að hópurinn mun styðja Miðflokkinn og þess vegna verða komandi kosningar spennandi og óljóst hvort Sjallarnir nái hreinum meirihluta eins og þeir höfðu á árum áður með 70 prósent atkvæða á bak við sig þegar Elliði réði ríkjum.

Svo er ljóst að samgöngumálin verða brennipunkturinn en þar eru Sjallarnir í viðkvæmri stöðu vegna þess að þeir hafa ráðið öllu varðandi Herjólf, Landeyjahöfn og flugsamgöngur sem eru engar meirihluta árs.