Stjórnmál

Kobeinn fer í framboð í Reykjavík

By Ritstjórn

April 24, 2021

Kolbeinn Óttarsson Proppé:

Ég er ekki í neinum vafa um að það er gæfa að ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttir hefur setið við völd síðustu ár, ekki síst í heimsfaraldrinum.

Tilkynning um framboð:

Ég hef tekið þá ákvörðun að gefa kost á mér í 2. sætið á lista Vinstri grænna í öðru hvoru Reykjavíkurkjördæmanna. Yfirlega síðustu vikna hefur fært mér enn frekar heim sanninn um það, sem þó hefði átt að vera mér ljóst, að ég brenn enn fyrir pólitík. Ég hef löngun og vilja til að halda áfram að starfa með því góða fólki sem hefur leitt hreyfinguna og íslenskt samfélag síðustu ár. Ég er líka hrærður yfir þeim áskorunum sem ég hef fengið frá fjölda fólks um að bjóða mig fram til áframhaldandi starfa fyrir VG á Alþingi.

Ég hef fengið að sitja á þingi fyrir Vinstri græn síðan haustið 2016, hef skipað 2. sæti á listanum í Reykjavíkurkjördæmi suður. Þó það sé ekki langur tími, þá hefur hann verið viðburðaríkur. Í stjórnarandstöðu var ég ræðukóngur Alþingis en hlutverkin hafa breyst við það að verða hluti af stjórnarmeirihlutanum þar sem vinnan er ekki síður fólgin í að ná málum fram í nefndum. Oft hefur gefið á bátinn, en ég hef talið það vera hlutverk okkar, sem styðjum forystu VG, að halda okkar sjónarmiðum hátt á lofti, benda á það góða sem ríkisstjórnin hefur gert, ekki síst okkar ráðherrar, og taka þátt í umræðu innan og utan þings, þó hún sé stundum býsna óvægin. Stjórnmál eru bæði súr og sæt og við þurfum að þola bæði, sem á að vera auðvelt þegar við trúum á málstaðinn. Ég er ekki í neinum vafa um að það er gæfa að ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttir hefur setið við völd síðustu ár, ekki síst í heimsfaraldrinum.

Ég bauð mig fram til að leiða lista VG í Suðurkjördæmi. Mig langaði til að leiða einn af listum okkar í næstu kosningum, vildi hafa meiri áhrif. Þá var ég til í að breyta til og búa í öðru umhverfi en á höfuðborgarsvæðinu, en það er nægur tími til þess síðar á lífsleiðinni. Ég tók áhættu með þessu og hún gekk ekki upp. Samkeppnin var enda mikil við frábært fólk og efstu sæti listans skipa öflugar konur.

Undanfarið hefur mér borist fjöldi áskorana og hvatning frá býsna mörgum um að gefa kost á mér í forvalinu í Reykjavík. Góðir og gegnir félagar skoruðu á mig opinberlega og enn fleiri hafa haft samband við mig persónulega. Frómt frá sagt varð ég undrandi og hrærður yfir viðbrögðunum. Mér þykir ótrúlega vænt um að fjöldi fólks hafi þá skoðun að ég eigi áfram heima á Alþingi og ég þakka auðmjúklega fyrir stuðninginn.

Yfirlega síðustu vikna hefur leitt mig að þeirri niðurstöðu að ég brenn enn af löngun til að starfa áfram á þingi fyrir VG. Ég tel mig hafa ýmislegt fram að færa og hafa sýnt það á síðustu árum að ég sé öflugur liðsmaður. Ég vil vera það áfram og gef því kost á mér í 2. sætið á lista VG í öðru hvoru Reykjavíkurkjördæminu.