Fréttir

Kofi en ekki kjarnorkuver

By Miðjan

January 13, 2019

Vigdís Hauksdóttir verður, ásamt fleiri borgarfulltrúum í Silfrinu í dag.

„…þar verður m.a. rætt um Braggann. Í þessari töflu má sjá hvílíkt rugl var í gangi – eins og t.d. raflögn fyrir rúmar 40 milljónir !!! Þetta eru kofar en ekki kjarnorkuver. Verk, tækni, land- og skipulagsfræðingar auk arkitektaþjónustu 53 milljónir Innri endurskoðandi skoðaði ekki sannleiksgildi þeirra reikninga sem skrifaðir voru á Braggann og það hef ég gagnrýnt – óháður rannsóknaraðili hefði byrjað á því Það vita allir að þessar endurbætur geta ekki kostað rúmar 420 milljónir – og þeim er ekki lokið.“