Fréttir

Kolbrún vill vita um alla umsækjendur

By Miðjan

October 16, 2018

Kolbrún Baldursdóttir borgarfulltrúi hefur lagt inn nokkrar spurningar vegna ráðningar deildarstjóra framkvæmdasviðs hjá Félagsbústöðum.

„Ég óska eftir að fá upplýsingar um ráðningu deildarstjóra framkvæmdarsviðs og legg fram eftirfarandi spurningar: Hvað margir sóttu um? Hvernig var ráðningarferlið? Óskað er eftir upplýsingum um alla umsækjendur og ferilskrá þeirra og upplýsingum um hvað réði niðurstöðu ráðningarinnar Hverjir komu að ráðningunni þ.e. ákváðu hver var valinn? Var valið á þeim sem ráðinn var lagt undir stjórn Félagsbústaða?“