- Advertisement -

KRISTRÚN: „ÞAÐ ER LJÓTT AÐ PLATA“

Vilhjálmur Birgisson skrifaði til forsætisráðherra:

„ÞAÐ ER LJÓTT AÐ PLATA, sagði forsætisráðherra í viðtali fyrir nokkrum vikum en vílar ekki fyrir sér að gera það í þessu máli!

Forsætisráðuneytið reynir nú að svara gagnrýni minni með því að blanda saman fundum um alls óskyld málefni og hinu raunverulega samtali sem þarf að eiga sér stað vegna forsendubrests kjarasamninganna.

Það gengur einfaldlega ekki upp.

Á fundi formanna landssambanda og stærstu félaga innan ASÍ í morgun var forseti ASÍ spurður hvernig samtalið við stjórnvöld hefði verið undanfarna mánuði um forsendubrest kjarasamninganna.

Svarið var hvellskýrt:

„Ekkert – því samtalið er ekki hafið.“

Þetta er kjarni málsins.

Forsætisráðuneytið getur opnað dagatalið og talið upp eins marga fundi og það vill. En fundur er ekki sjálfkrafa samtal um lausn forsendubrests kjarasamninga.

Skipaðir voru stýrihópar og undirhópar sem meðal annars áttu að fara yfir tekjuþróun og fjárhagsstöðu samfélagshópa og skoða valkosti til að draga úr sjálfvirkum verðlagsbreytingum.

Það getur allt verið góðra gjalda vert.

En sú vinna er ekki samtal við þá sem fara með samningsumboðið um hvað stjórnvöld ætli að leggja á borðið til að liðka fyrir vegna forsendubrests kjarasamninganna.

Og það samtal er ekki hafið.

Það staðfesti forseti ASÍ með skýrum hætti fyrir formönnum landssambanda og stærstu félaga innan ASÍ í morgun.

Þetta er sérstaklega alvarlegt í ljósi þess að forsætisráðherra hefur mánuðum saman talað um „virkt samtal“ við aðila vinnumarkaðarins.

Þann 1. september boðaði forsætisráðherra meira að segja að ríkisstjórnin myndi kynna úrræði á fundi Þjóðhagsráðs 3. september sem ættu að liðka fyrir því að kjarasamningar haldist.

Ekkert slíkt var kynnt.

Þess í stað kemur fjárlagafrumvarp með skattahækkunum, gjaldskrárhækkunum langt umfram 2,5% markmiðið og öðrum aðgerðum sem gera okkur erfiðara fyrir að finna lausn á forsendubrestinum.

Þannig að hættið að blanda saman fundum um óskyld verkefni og hinu eiginlega samtali um forsendubrest kjarasamninganna.

Spurningin er afskaplega einföld:

Hvenær hefst samtalið við þá sem fara með samningsumboðið um hvað þurfi að gera til að liðka fyrir því að kjarasamningarnir haldi?

Forsætisráðherra hefur sagt þjóðinni mánuðum saman að samtalið sé virkt.

Forseti ASÍ segir að það sé ekki hafið.

Hvort tveggja getur ekki verið rétt.

Kristrún, það er ljótt að plata.“


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: