- Advertisement -

Krónuálagið er ekki goðsögn

Atli Þór Fanndal skrifaði:

„Vextir munum lækka með evru. Það er einfaldlega hálfvitaskapur að halda öðru fram. Það er fullt af fólki sem hefur bæði meira vit og þolinmæði en ég sem nennir að láta eins og þetta sé eitthvað sem þarf að rökræða betur og nennir að reyna að útskýra þetta fyrir neikvæðum. Það er gott og blessað en þetta er bara rugl umræða sem engu er við að bæta. Þeir sem enn halda öðru fram kjósa að heyra ekki, sjá ekki og skilja ekki.

Vextir munu lækka með stærri gjaldmiðli sem nýtur trausts fjárfesta. Að segja annað er heimskulegt. Reynsla annarra þjóða sýnir þetta.

Reynsla Íslands af því hvernig ódýrt lánsfé í evrum, dollurum og jenum var flutt hér inn til að lána áfram og hyrða millivexti sýnir þetta og Icesave sýnir þetta. Icesave var auðvitað bara íslenskur banki að greiða hærri vexti til að bjarga sjálfum sér. Ná sér í ‘ódýrt’ lánsfé með því að greiða yfirverð á evrumarkaði þegar aðrir höfðu hætt að lána.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Ef vextir myndu ekki lækka hér með evru þá segir sig nokkuð sjálft …

Ef vextir myndu ekki lækka hér með evru þá segir sig nokkuð sjálft að sparifjáreigendur og jafnvel almenningur í ESB myndu troðfylla íslenska banka með sparnaðinum sínum til að sækja háa vexti hér og betri ávöxtun. Sem auðvitað gæti vel lækkað vexti…

Krónuálagið er ekki goðsögn. Vextir eru einfaldlega alltaf aðeins hærri hér með krónu og þetta vita allir sem nenna að vita. Látum ekki bjána stjórna samtalinu jafnvel þótt þeir eigi peninga til að pródúsera áferðarfalleg myndbönd og kaupa Mogga. Lífið er of skemmtilegt til að þola það.

Ekki vera bjáni sem lætur draga þig inn í svona gerviumræðu. Evran er ekki töfralausn fyrir Ísland. Hún er samt gjaldmiðill án krónuálags og það er byrjun.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: