- Advertisement -

Lærum af reynslu Skota

Hrafn Magnússon skrifaði:

Árið 2014 fór fram þjóðaratkvæðagreiðsla í Skotlandi. Kosningaþátttakan var með eindæmum mikil eða 85% kosningabærra manna.

Kosið var um hvort Skotland ætti áfram að vera innan Bretlands (United Kingdom) eða lýsa yfir sjálfstæði.

Kosningabaráttan var hörð á báða bóga. Fjölskyldur klofnuðu í afstöðu sinni, vinahópar splindruðust og nágrannar hættu að tala saman, slíkur var tilfinningahitinn þegar úrslit lágu fyrir. Niðurstaðan var sú að 55% vildu vera áfram innan Bretlands en 45% vildu lýsa yfir sjálfstæði Skotlands.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Ég vek athygli á þessum staðreyndum þegar við göngum að kjörborðinu næsta laugardag.

Nú er gott að spara stóru orðin, því aðgát skal höfð í nærveru sálar, svo vitnað sé í Einar Benediktsson í kvæði sínu um Einræður Starkaðar.

Virðum skoðanir annarra þó við séum á öðru máli. Þannig virkar lýðræðið best. Látum sára reynslu Skota okkur að kenningu verða.


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: