Mynd: dv.is.

Stjórnmál

Landskjörstjórn hefur stigið með afgerandi hætti inn á hið pólitíska svið

By Miðjan

April 12, 2026

Sigurður Gylfi Magnússon sagnfræðiprófessor við Háskóla Íslands skrifaði eftirfarandi um stöðu landskjörstjórnar:

Um yfirlýsingu Landskjörstjórnar frá því í fyrradag (10. apríl 2026):

„Mig langar til að vísa áhugafólki um umsókn Íslands að Evrópusambandinu á greinargerð eða minnisblað sem utanríkisráðuneytið tók saman fyrir utanríkismálanefnd Alþingis í ágúst 2025. Þetta er sérlega áhugaverð samantekt í ljósi nýrrar yfirlýsingar Landskjörstjórnar um að spurning sem á að leggja fyrir þjóðina í ágúst á þessu ári sér gildishlaðin.

Eftir lestur þessa minnisblaðs velti ég fyrir mér hvort að fulltrúum Landskjörstjórnar sé sætt að halda áfram vinnu sinni því þeirra yfirlýsing er sannarlega pólitísk. Það er varla hægt að draga aðra ályktun af henni. Vissulega eru skiptar skoðanir um hvort Alþingi hafi þurft að ljúka aðildaviðræðunum við ESB með formlegum hætti eða hvort það hafi nægt að þáverandi utanríkisráðherra sendi bréf og málinu væri þá lokið. Þetta er að sjálfsögðu hin klassíska spurningu um þrígreiningu valdsins (löggjafavald, dómsvald og framkvæmdarvald) og ég hef sjálfur verið mikill áhugamaður um að vegur Alþingis sé gerður sem mestur.

Ég læt hins vegar fólk um að dæma það sjálft eftir lestur þessa minnisblaðs hvað hafi verðið rétta að gera í þessu sambandi. Í þessu minnisblaði kemur margt mjög áhugavert fram sem skiptir máli fyrir afstöðu fólks til þessa mikilvæga máls. Hér hafa þau tíðindi gerst að Landskjörstjórn hefur stigið með afgerandi hætti inn á hið pólitíska svið. Það eru stórtíðindi! Sjá vísun í minnisblaðið hér fyrir neðan.