Lilja Alfreðsdóttir, formaður Framsóknarflokksins, skrifar:
„Nú þarf ríkisstjórnin að leggja öll spil á borðið. Er búið að semja um mögulega varanlega sérlausn fyrir Ísland?
Utanríkisráðherra Íslands: Já. Forsætisráðherra Hollands: Nei.
Hvað er rétt?
Til að þjóðin geti tekið upplýsta ákvörðun um að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið, þá þarf ríkisstjórnin að leggja öll spil á borðið. Í Morgunblaðinu er greint frá því að forsætisráðherra Hollands hafi staðfest, að ríki sem ganga í Evrópusambandið verði að lúta sameiginlegri sjávarútvegsstefnu sambandsins. Á sama tíma hefur utanríkisráðherra Íslands sagt að fulltrúar Evrópusambandsins hafi rætt möguleikann á varanlegum sérlausnum fyrir Ísland.
Utanríkisráðherra segir orðrétt: „Þetta er ekki í samræmi við mín samtöl, meðal annars við Hollendinga og mína kollega.”
Ef svo er, vakna eðlilegar spurningar:
1. Hvaða samskipti hafa átt sér stað milli íslenskra stjórnvalda og fulltrúa Evrópusambandsins? 2. Eru til minnisblöð, fundargerðir eða önnur gögn sem varpa ljósi á þessi samskipti? 3. Er það ekki áhyggjuefni að skilningur utanríkisráðherra Íslands um eitt stærsta hagsmunamál þjóðarinnar er annar en forsætisráðherra Hollands?
Þjóðin á rétt á skýrum svörum áður en gengið verður til þjóðaratkvæðagreiðslu. Upplýst umræða byggist á staðreyndum, ekki mismunandi túlkunum eða óstaðfestum væntingum.
Það er því eðlileg krafa að ríkisstjórnin birti öll gögn sem varða samskipti hennar við Evrópusambandið um mögulegar undanþágur eða sérlausnir í sjávarútvegsmálum.
Gagnsæi styrkir lýðræðið og eykur traust.“
Tenglar hér að neðan á fréttir tengdar efninu: