Leigja allan kvótann og fá þannig 900 milljónir á ári

Eru með 4.000 tonna kvóta en eiga ekki bát til veiðanna og enga fiskvinnslu.

Eskja á Eskifirði býr við þá stöðu að fá til sín á hverju ári allt að 950 milljónir króna í leigutekjur af kvóta á hverju ári. Þetta gerist ár eftir ár. Eskja á ekki bát og ekki heldur fiskvinnslu  til að veiða og vinna þau rúmlega fjögur þúsund tonn af  bolfiski sem fyrirtækið  „á“.

Eskja vistar kvótann á Jóni Kjartanssyni SU. Sá fiskar ekki botnfisk. Er ekki búinn til þeirra veiða. Kvótinn er þess í stað leigður út og suður.

Botnfiskskvóti Eskju er mjög  verðmætur. Kostar sennilega um ellefu milljarða og árlegar leigutekjur Eskju eru trúlega frá 700 til 950 milljónir króna.

Byggt á fréttaskýringu á aflafrettir.is.