- Advertisement -

Leigumarkaðurinn setur fólk í þvílík vandræði

„Ég tilheyri lágstétt og ekkert má út af bera. Ég hélt að ég tilheyrði millistétt en það eru bara tvær stéttar, lágstétt og hástétt.“

Fólkið í Eflingu. Mynd og texti: Alda Lóa: „Ég fór út á vinnumarkaðinn 16 ára gömul. Ég vann á kassa í Bónus, American Style og MS ís í þrjú ár. Hérna hef ég verið Búkollubílstjóri síðan 2016 í styttri og lengri tíma. Þetta eru farmflutningar, flytjum úrgang og önnur efni á milli staða. Búkolla vegur allt upp í 70 tonn með farmi og það má ekki aka henni út á malbikinu.

Fyrir utan að vera með próf á Búkollu þá er ég með próf á lyftara og það er á plani hjá mér að taka próf á gröfuna. Ég er búin með bóklega þáttinn en vantar verklega þjálfun. Það er smá hræðsla í manni að maður gæti skemmt gröfuna. “

Fólkið mitt er duglegt. Mamma hefur unnið í Kjötsmiðjunni síðan ég var tíu ára og systur mínar eru snyrtifræðingar. Báðir afar mínir voru pípulagningamenn og þegar ég ætlaði að gera upp baðherbergið hjá mér þá ákvað ég að læra sjálf pípulagnir og skellti mér í nám.

Ég lenti í bílslysi árið 2011 og fyrir slysabæturnar og aðstoð fjölskyldunnar festi ég kaup á íbúð í Breiðholtinu og stend núna í miðjum eldhúsframkvæmdum. Leigumarkaðurinn setur fólk í þvílík vandræði og margir hafa búið hjá mér sem hafa verið í einhverskonar millibilsástandi, annaðhvort að safna fyrir eða bíða eftir íbúð. Ég minnist þess ekki að ég hafi nokkur tímann búið ein.

Núna er ég að vinna eins mikið og ég get, safna fyrir eldhúsinu og skólanum í vetur. Ég ætla að leigja íbúðina mína og flytja inn með kærastanum í 10 fermetra herbergi sem foreldrar hans eiga. Ég tilheyri lágstétt og ekkert má út af bera. Ég hélt að ég tilheyrði millistétt en það eru bara tvær stéttar, lágstétt og hástétt. Millistéttin er að þurrkast út og fólk færist nær þeim ás sem liggur næst þeim.

Áhugamál mín snúast um tónlist, tölvuleiki og perluföndur. Útgjöldin eru ekki mikil og ég kann að spara. Ég reyki ekki og drekk áfengi kannski einu sinni á ári. Að vísu fékk ég upp úr þurru brjálaðan áhuga á skóm og ef ég sé fram á að eiga pening þá kaupi ég mér skó, ég elska hælaskó, og á þrjátíu pör af hælaskóm. Ég er meira að segja með glerskáp og nokkur skópör til sýnis í honum. Ég hafði aldrei hugsað áður um tísku né útlit, langt því frá þegar þessi áhugi á skóm blossaði upp úr þurru.

Mér finnst að það þurfi að taka á húsnæðisvandanum og mér finnst glatað að gæludýr eru miður vinsæl hjá leigusölum. Síðan finnst mér fáránlegt hvernig farið er með öryrkja og gamla fólkið sem byggði upp landið okkar. En ég hef verið svo upptekin við að gera upp eldhúsið hjá mér að ég fylgist ekki nógu vel með.“

Ágústa Kolbrún Guðrúnardóttir er bílstjóri á farmflutningabifreið og félagi í Eflingu.


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: