Greinar

„Þeir lifa á himinháum eftirlaunum“

- og kalla okkur hin sjálftökufólk.

By Miðjan

October 22, 2018

Brynjar Níelsson skrifar á Facebook: „Verð bráðlega að ofstopafullum femínista haldi sjónvarpsstöðin Hringbraut áfram að draga fram í hverri viku hvíta og rúmlega miðaldra karlkyns stjórnmálamenn og ritstjóra til að segja okkur hvað þeir voru göfugir og óspilltir í gamla daga en við vitlaus og óheiðarleg í dag. Þeir þurfa auðvitað ekki að hafa áhyggjur af því að verða reknir og geta því sagt hvað sem er. Þeir lifa á himinháum eftirlaunum, sem við sjálftökufólkið, eins og þeir kalla okkur hin, munum ekki fá. Sennilega rétt sem margir fræðimenn hafa sagt að veruleikinn skolast stundum til þegar árin líða.“