Fréttir

Lilja setur Ingibjörgu af

By Miðjan

March 11, 2026

Lilja Alfreðsdóttir, nýkjörin formaður Framsóknar, hefru sett Ingibjörgiu Isaksen þingkonu af sem þingflokksformaður. Ingibjörg er á öðru kjörtímabili á þingi og hefur þar til nú gegnt formennsku hjá Framsóknarflokki.

Ingibjörg og Lilja buðu sig báðar fram til formennsku í Framsókn. Lilja vann öruggan sigur. Hún setur keppinautinn af sem formaður þingflokksins.

Stefán Vagn Stefánsson, sem var kjörinn varaformaður á sama landsfundi, tekur við sem formaður þingflokksins.