Stjórnmál

Ljá máls á því að afnema neitunarvald einstakra ríkja

By Miðjan

June 09, 2026

Alþingi Sigríður Á. Andersen sagði á Alþingi í dag:

„Háttvirtur þingmaður Dagur B. Eggertsson fór fögrum orðum um þátt í ríkissjónvarpinu í gær, Silfrinu, sem var með nokkrum ólíkindum en kemur ekki á óvart að hv. þm. Degi B. Eggertssyni hafi hlýnað um hjartarætur. Þar voru fengnir til viðræðna um aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu sérfræðingar svokallaðir sem öllum má vera ljóst hver afstaða þeirra er, einhverjir þarna opinberir starfsmenn sem hafa tekið þátt í þessum viðræðum.

Þarna kom margt spánskt fyrir sjónir, m.a. voru nefnd einhver skjöl sem ekki hafa verið viðruð hér eða þeim flaggað hér á Íslandi eftir viðræðurnar sem áttu sér stað 2009. Svo var þarna í þessum þætti fullyrt ýmislegt sem ég er ekkert viss um að standist endilega skoðun til lengri tíma, m.a. var rætt um hugmyndir manna um evrópskan her, samevrópskan her, og það fullyrt að Ísland myndi hafa neitunarvald í þeim efnum þegar til þess kæmi, enda hefðu öll ríkin neitunarvald um mikilsverð málefni í Evrópusambandinu. Þó er það þannig að einmitt nú um stundir er verið að ljá því máls að afnema neitunarvald einstakra ríkja.

Vegna hvers? Jú, einmitt vegna stríðsátakanna í Úkraínu. Það liggur þannig í því að neitun einstaks ríkis um að fjármagna varnir Úkraínu hefur valdið pirringi í röðum forystumanna ríkja Evrópusambandsins og nú tala bæði framkvæmdastjórinn og hinn frægi Mario Draghi, sem hefur nú verið leiðtogi í Evrópusambandsríki, mjög fyrir því að afnema þetta neitunarvald. Svo er því slengt hér fram að Ísland fái sæti við borðið af því að Ísland fái sex þingmenn af 720 þingmönnum, 720. Og svo með glýju í augum var það nefnt líka af einum viðmælenda þarna að jú, Ísland fengi nú einn framkvæmdastjóra. Það er nú allur sigurinn og upphefðin sem Ísland fengi af því að ganga í Evrópusambandið.“