Stjórnmál

Löndin í Evrópusambandinu eru auðvitað öll fullvalda og sjálfstæð ríki

By Miðjan

April 07, 2026

Stjórnmál: Segja má að mest verði hlustað á orð Þórdísar Kolbrúnar R. Gylfadóttur af þeim sem nú sitja Alþingi. Sem, fyrrverandi utanríkisráðherra hefur hún mikla þekking. Hér á eftir er lítill hluti ræðu hennar á Alþingi, frá því áður en Alþingi Íslendinga fór í páskaleyfi, og er i því enn. Þórdís Kolbrún sagði:

„Ég vil líka segja hér að það er ekki rétt að halda því fram að við værum hvorki sjálfstæð þjóð eða fullvalda ef við værum aðilar að Evrópusambandinu. Aðildarríki Evrópusambandsins eru auðvitað fullvalda og sjálfstæð ríki. En það er hins vegar hárrétt að í aðild fælist valdframsal; svo mikið valdframsal að stjórnarskrá lýðveldisins heimilar ekki slíkt framsal og henni þyrfti að breyta. Við gætum ekki gerst aðilar án þess að breyta stjórnarskránni og setja þær heimild fyrir slíku valdframsali. Valdframsalið er sem sagt svo mikið að það þarf að breyta stjórnarskránni. Mér finnst mikilvægt að kjósendur átti sig á því og það sé algerlega skýrt.“

Hér er svo hægt að lesa ræðuna alla, sem mælt er með að fólk geri.