- Advertisement -

Lyginn Halldór Benjamín og það í beinni útsendingu

Jóhann Þorvarðarson skrifaði:

Í þætti á RÚV í kvöld sagði Halldór Benjamín blákalt að atvinnuleysi innan Evrópusambandsins væri svo mikið og miklu meira en hér á landi að hann gæti ekki hugsað sér að halda áfram með aðildarviðræður. Þetta er hrein og klár lygi í beinni útsendingu í sjónvarpi hjá RÚV. Myndin sýnir hvernig staðan er.

Atvinnuleysi hér á Íslandi og innan evrusvæðisins er jafn mikið eða 6,3%. Það er síðan 5,9% innan Evrópusambandsins.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Framkoma Halldórs Benjamíns er hreinn dónaskapur við þjóðina og lygin eingöngu sett fram nema til að blöffa fólk til að segja nei á laugardag.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: