Lyginn Halldór Benjamín og það í beinni útsendingu

Jóhann Þorvarðarson skrifaði:

Í þætti á RÚV í kvöld sagði Halldór
Benjamín blákalt að atvinnuleysi innan Evrópusambandsins væri svo mikið og
miklu meira en hér á landi að hann gæti ekki hugsað sér að halda áfram með
aðildarviðræður. Þetta er hrein og klár lygi í beinni útsendingu í sjónvarpi
hjá RÚV. Myndin sýnir hvernig staðan er.

Atvinnuleysi hér á Íslandi og innan
evrusvæðisins er jafn mikið eða 6,3%. Það er síðan 5,9% innan
Evrópusambandsins.

Framkoma Halldórs Benjamíns er
hreinn dónaskapur við þjóðina og lygin eingöngu sett fram nema til að blöffa
fólk til að segja nei á laugardag.