Fréttir

Má Inga Sæland kjósa í leyni?

By Miðjan

March 18, 2026

Stjórnmál: Inga Sæland sagði á Alþingi að engum kæmi við hvernig muni kjósa í komandi kosningum um áframhald eða ekki áframhald viðræðna við Evrópusambandið.

Sólveig Anna skrifaði:

„Ömm… – getur ráðherra virkilega haldið því fram að engum komi við hvernig hún greiði atkvæði? Ég skil að fólk hefur allskonar hugmyndir um stjórnmál og hvað það þýðir að búa í frjálsu lýðræðissamfélagi og hef heyrt að sumt fólk vilji t.d. allsekki tala um pólitík við börnin sín eða í fjölskylduboðum (hef heyrt, aldrei upplifað), en er ekki voðalega skrítið að manneskja sem vill láta kjósa sig til æðstu valda lýðveldisins móðgist ægilega ef hún er spurð hvernig hún ætli sér að greiða atkvæði í þjóðaratkvæðagreiðslu sem hennar eigin ríkisstjórn hefur boðað?“

-„Á ég ekki bara að fara með seðilinn hérna niður á Austurvöll í beinni útsendingu til að sýna öllum hvernig ég ætla að greiða atkvæði? Er ekki allt í lagi? Ég hef aldrei heyrt aðra eins fyrirspurn á ævinni. Það bara kemur akkúrat engum við hvernig ég greiði atkvæði,“ sagði Inga.-

Haukur Már Haraldsson skrifaði:

„Ef ég man rétt er reglan sú í okkar lýðræðislega samfélagi að almennar kosningar eru leynilegar. Auðvitað þarf enginn að gefa það upp opinberlega hvernig hann ætlar að greiða atkvæði eða hvernig hann kaus. Enda var þessi fíflaleg fyrirspurn bara gerð til að búa til þras. Sem sýnilega tókst.“