Fréttir

Mál þingdólganna: Fyrsta afsögnin komin

By Miðjan

November 29, 2018

Afleiðingar af grófyrðum og meiðandi ummælum þingmanna hefur leitt til einnar afsagnar, enn sem komið er. Og það er kona sem segir af sér. Á vef RÚV má lesa þetta:

„Vilborg G. Hansen, varamaður í bankaráði Seðlabanka Íslands, hefur óskað lausnar. Hún sendi Gylfa Magnússyni, formanni bankaráðsins, og Steingrími J. Sigfússyni, forseta Alþingis, erindi þessa efnis í morgun. Í bréfinu segir hún að sér sé ómögulegt að styðja lengur þann flokk sem hún situr í umboði fyrir eftir fréttir gærdagsins í DV og Stundinni.“