Greinar

Miller er stórhættulegur maður

By Miðjan

November 09, 2026

Bandaríkin:

Gunnar Hólmsteinn Ársælsson skrifaði:

„Það færist enn meiri drungi yfir Hvíta húsið fyrir vestan með tilkomu þessa manns til hægri á myndinni, Stephen Miller, sem starfsmannastjóri forsetans (Chief of Staff). Eins og nafnið gefur til kynna, þá er þetta valdamikið embætti (sem þarf ekki samþykki Öldungadeildar, því miður) og í því felst meðal annars að samþætta og stjórna daglegum störfum forsetans, aðgangi að honum, stjórnun starfsliðs forsetans og fleira slíkt. Hann kemur líka að samskiptum vð þingið að stórum hluta varðandi löggjöf, almennri stefnumótun og fleira sem ég ætla ekki að telja upp hér. Vandamálið er bara að SM er stórhættulegur maður og ber m.a. mikla ábyrgð sem einn helsti ráðgjafi forsetans (verður það enn meira nú) á ICE-ofbeldinu sem hefur kostað 65 manns lífið frá ársbyrjun 2025. SM hefur einnig dáðst opinberlega að pyntingum. Enn ein sendingin úr neðra…og pósan fær mann auðvitað að hugsa til Ítalíu í byrjun 20. aldarinnar þar sem ákveðin hreyfing manna varð til.“