Stjórnmál

Milljónagreifarnir í Seðlabankanum hlæja að stöðu peðanna á taflborði fjármálaaflanna

By Miðjan

October 21, 2026

ALÞINGI:

Ásthildur Lóa Þórsdóttir, Flokki fólksins, lét til sín heyra á Alþingi fyrr í dag. Hún sagði:

„Í síðustu viku opinberaði varaseðlabankastjóri peningastefnu, að bankinn hefði skapað slaka í efnahagslífinu og þannig framkallað aukið atvinnuleysi til að stuðla að því að kjarasamningum yrði ekki sagt upp. Skeytingar- og skilningsleysi sem birtist í orðum varaseðlabankastjóra á kjörum og lífi vinnandi alþýðu er með miklum ólíkindum. Þessi kaldranalegu ummæli eins áhrifamesta embættismanns þjóðarinnar gefa til kynna að vinnandi fólk í landinu sé peð á taflborði fjármálaaflanna. Þetta sjónarmið er auðvitað ekki líðandi hjá æðstu embættismönnum Seðlabanka Íslands.

Ég hef margoft gagnrýnt Seðlabankann og stjórnendur hans og er gríðarlega ósátt við vaxtahækkunarblæti hans, hávaxtastefnu bankans sem kemur verst niður á þeim efnaminni og hefur neytt þúsundir heimila í verðtryggð lán sem seðlabankastjóri segist á sama tíma vera á móti. Það er löngu kominn tími til að fara aðrar leiðir en leið sífelldra vaxtahækkana sem bíta þá helst sem skulda mest og minnst eiga. Vaxtahækkanir hygla fjármagnseigendum og þeim sem ekkert skulda og bera mesta ábyrgð á ofþenslu og þar með verðbólgu. Þannig að verðbólguvaldarnir sleppa og hagnast jafnvel á sama tíma og efnaminnstu heimilunum, peðunum á taflborði peningastefnunefndar, er sagt að herða sultarólina. Þessi tilhögun Seðlabankans hefur staðið yfir í rúm fjögur ár og litlu sem engu skilað, enda hefur verðbólgan lengst af verið af orsökum sem heimilin á Íslandi hafa lítil sem engin áhrif á en forráðamenn Seðlabankans halda áfram að berja höfðinu við steininn.

Orð varaseðlabankastjóra í síðustu viku staðfesta að innan Seðlabankans er lítill skilningur á kjörum venjulegs fólks sem ekki er með 2 milljónir og þaðan af meira í laun á mánuði. Þessi orð varaseðlabankastjórans koma ofan í þær yfirlýsingar bankastjórans sjálfs um að það sé heimskulegt af stjórnvöldum að ætla að setja einhverjar hömlur á mánaðarlegar hækkanir á húsaleigu. Já, milljónagreifarnir í Seðlabankanum hlæja að stöðu peðanna á taflborði fjármálaaflanna. Í augum þeirra sem stjórna Seðlabankanum er vinnandi fólk í landinu peð sem fjármagnseigendur mega mjólka þar til blæðir. Að auki má síðan svipta sama fólk atvinnunni til að hræða það frá því að sækjast eftir leiðréttingu kjara sinna. Er ekki kominn tími til að endurhugsa þau völd og áhrif sem Seðlabankinn hefur í íslensku þjóðfélagi?“