Mannlíf

MiniAnism í Kling & Bang

By Miðjan

June 25, 2014

Menning Klukkan 18.00 opnar listahópurinn „Friends&Lovers“ sýninguna MiniAnism í Kling & Bang gallerí á Hverfisgötu 42.  Hópurinn samanstendur af myndlistar- og tónlistarmönnum frá Hamborg í Þýskalandi.  Verkefnið sem þau sýna hefur staðið yfir síðan 2011, þar sem þau hafa sankað að sér listaverkum eftir vel þekkta og minna þekkta listamenn, og einnig hér á Íslandi.  Sýningin stendur einungis í einn sólarhring, frá klukkan 18 miðvikudaginn 25.júní til kl.18 fimmtudaginn 26.júní, þar sem hægt verður að upplifa lifandi tónlist, listaverk frá öllum heimshornum og margt fleira.