- Advertisement -

Minkunum var enginn greiði gerður

Ester Rut Unnsteinsdóttir.

„Þetta hjálpar dýrunum ekki neitt. Þau sem ekki nást verða í mikilli hættu. Minkarnir eru hjálparvana,“ sagði Ester Rut Unnsteinsdóttir sérfræðingur hjá Náttúrufræðistofnun.

Að sleppa dýrum lausum sem alltaf verið í búrum er ekki gott.“ Minkar eru framandi tegund hér – enginn minkur á Íslandi er upprunalegur hér. Allir eru þeir komnir frá strokuminkum. Þeir sem ekki nást aftur í Mosfellsdal munu flestir, jafnvel allir eiga erfitt líf framundan. „Það er alltaf einn og einn sem nær að bjarga sér,“ segir Ester Rut.

Þá er að sjá hvernig þeir lifa af veturinn. Óvanir að veiða sér til matar. Hafa hingað til verið í þessum litlu og þröngu búrum. „Þetta er ekki rétta leiðin til að mótmæla því.“

Ester Rut segir það illa misskilið og það muni bitna á dýrunum sjálfum.

Minkar eru skaðvaldar í íslenskri náttúru. Til dæmis fyrir margar fuglategundir. Þeir geta kafað eftir æti og eru því ekki vinsælir með íslenskra laxveiðimanna.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: