- Advertisement -

Mogginn hljóp illa á sig

Úr Mogga dagsins.

Þrír lagaprófessorar við Háskólann í Reykjavík saka Morgunblaðið um að halda því ranglega fram að þeir telji ómögulegt að semja um varanlegar undanþágur í aðildarviðræðum við Evrópusambandið.

Vísir segir svo frá: „Á forsíðu Morgunblaðsins í morgun er haft eftir Ólafi Ragnari Grímssyni, talsmanni samtakanna Áfram Ísland og fyrrverandi forseta Íslands, að utanríkisráðuneytið sé orðið að „áróðursdeild“. Í undirfyrirsögn segir svo „Þrír lagaprófessorar telja engar undanþágur vera í boði“. 

Þar er verið að vísa til álits sem dr. Gunnar Þór Pétursson, dr. Hafsteinn Dan Kristjánsson og dr. Margrét Einarsdóttir, prófessorar við lagadeild Háskólans í Reykjavík, gerðu að beiðni forsætisráðuneytisins. 

Þú gætir haft áhuga á þessum

Gunnar Þór sagði í samtali við fréttastofu að í álitinu sé hvergi sagt að engar undanþágur væru í boði. 

„Það er ekkert sem útilokar að hægt sé að fá bæði varanlegar og tímabundnar undanþágur í aðildarsamningum. Aðildarsamningar eru þjóðréttarsamningar og þetta er þá pólitískt málefni hvað hægt er að ná fram þar. Við bendum líka á það í álitinu að þegar að verið er að meta hvað hafi fengist í fortíðinni, þá þurfum við líka að horfa til þess hvað hafi verið farið fram á. Og ekkert ríki hefur farið fram á undanþágu frá sjávarútvegsstefnunni í heild sinni og þess vegna eru engin slík dæmi,“ sagði Gunnar Þór.

Engin viðbrögð eru sjáanleg á mbl.is. Kannski reynir fólkið þar á bæ að láta sem ekkert sé. Sjáum til.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: