Ég er hættur að kaupa Moggann. Blað fyrir fýlupúka. Mogginn berst um í stjóranrandstöðunni. Sem er ekki hans heimavöllur. Án þess að vera með áskrift er hægt að lesa hluta af nýjustu Staksteinum. Lesum:
„Landsmenn hafa setið uppi með vinstristjórn síðan skömmu fyrir síðustu jól. Hvað hefur hafst upp úr því? Sjávarbyggðir víða um land munu finna fyrir veiðigjaldsfrumvarpinu sem samþykkt var nú í sumar. Útgerðin gæti þurft að fækka starfsfólki, útflutningur á fiski gæti aukist.
Skattpíning hefur löngum verið fylgifiskur vinstristjórna. Þær hafa yfirleitt skilið við efnahagsmálin í slæmu ástandi. Nýjasta útspilið hjá þeim stöllum forsætisráðherra og utanríkisráðherra er að bjóða hingað háttsettasta embættismanni ESB.“
„Þær hafa yfirleitt skilið við efnahagsmálin í slæmu ástandi,“ skrifar Davíð um vinstri stjórnir. Bíðum aðeins við. Hver er staðan nú eftir ríkisstjórnir Sjálfstæðisflokksins. Allt í rúst. Innviðaskuldir um allt land, aldrei verið lengri biðlistar í heilbrigðisþjónustu, og áfram er væri hægt að telja.