- Advertisement -

Mogginn vill láta reka þá Stefán Eiríksson og Pál Gunnar Pálsson

Hrafn Magnússon skrifar:

Gagnrýni öfgamanna í stjórnmálum beinist núna aðallega að tveimur ríkisstofnunum og yfirmönnum þeirra, þ.e. Ríkisútvarpinu og Samkeppniseftirlitinu.

„Ekki veit ég hvort leiðaraskrif Morgunblaðsins í gær eiga að fara í taugarnar á mér umfram venjulega, en þau gera það samt.

Í Morgunblaðinu í gær er fjallað um nýlegan dóm hæstaréttar Bandaríkjanna að leyfa Donald Trump að reka embættismenn ef honum sýnist svo, ekki síst ef hann telur þá ekki vera stuðningsnenn sína.

Við lestur blaðsins virðist ljóst að leiðarahöfundur telur að slíkt eigi ekki síður að gilda um íslenska embættismenn.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Það er dapurleg staðreynd en rétt.

Morgunblaðið er eina dagblaðið hér á landi. Engin önnur dagblöð eru gefin út. Blaðinu er eins og alþjóð veit haldið uppi af stórútgerðinni og reyndar einnig fjármunum frá ríkissjóði. Það finnst Mogganum ekki nóg í fákeppninni, ef taka á mark á leiðaranum.

Gagnrýni öfgamanna í stjórnmálum beinist núna aðallega að tveimur ríkisstofnunum og yfirmönnum þeirra, þ.e. Ríkisútvarpinu og Samkeppniseftirlitinu. Þeir vilja þess vegna reka þá Stefán Eiríksson og Pál Gunnar Pálsson, helst strax í dag.

Það er dapurleg staðreynd en rétt. Leiðarahöfundur lMorgunblaðsins leggur sitt á vogarskálina til að svo geti orðið, því miður.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: