Greinar

Mörður Árnason – minning

By Miðjan

November 11, 2026

Alþingi:

Hér á eftir eru minningarorð Þórunnar Sveinbjarnardóttur um Mörð Árnason fyrrum þingmann:

Í gær barst hingað í Alþingishúsið sú sorgarfregn að Mörður Árnason, fyrrverandi alþingismaður, hefði látist nóttina áður á líknardeild Landspítalans í Kópavogi. Hann var 73 ára gamall. Mörður var fæddur í Reykjavík 30. október 1953, sonur hjónanna dr. Árna Björnssonar þjóðháttafræðings og Vilborgar Harðardóttur blaðamanns og blaðaljósmyndara sem einnig sat um tíma á Alþingi.

Að loknu stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík hóf Mörður nám í íslensku og málvísindum við Háskóla Íslands og lauk BA-prófi í þeim greinum 1978. Mörður nam einnig málvísindi við Óslóarháskóla og Sorbonne í París þar sem hann dvaldist um árabil. Mörður Árnason kom víða við á starfsferli sínum. Hann vann hjá Orðabók Háskólans um skeið og var blaðamaður á Þjóðviljanum og ritstjóri hans um tíma. Hann flutti enn fremur pistla um íslenskt mál í Ríkisútvarpið sem gefnir voru út á bók sem ber heitið Málkrókar. Mörður var ritstjóri við Bókaútgáfu Máls og menningar og Eddu útgáfu í rúman áratug og milli tarna í stjórnmálum. Ber þar hæst ritstjórn hans á þriðju útgáfu Íslenskrar orðabókar 2002 sem var mjög aukin að efni. Eftir að stjórnmálaferli lauk var hann afkastamikill og eftirsóttur sérfræðingur við útgáfu rita af ýmsu tagi og ritstjórn þeirra. Útgáfa hans á Passíusálmum Hallgríms Péturssonar frá árinu 2015 með leiðsögn um efni sálmanna er rómað verk og ber vitni öruggum smekk hans í bókmenntum og máli.

Mörður Árnason var vinstri maður af hugsjón. Þegar miklar hræringar urðu vinstra megin við miðju í íslenskum stjórnmálum undir lok síðustu aldar var hann meðal þeirra sem leita vildu nýrra leiða til að samþætta og efla áhrif þeirra sjónarmiða á sem flestum sviðum. Hann var meðal þeirra sem stofnuðu Þjóðvaka – hreyfingu fólksins, og var í framboði fyrir þann flokk í alþingiskosningunum vorið 1995. Mörður varð þá varaþingmaður og sat á Alþingi í nokkur skipti. Hann var síðar kjörinn á þing af framboðslista Samfylkingarinnar í Reykjavíkurkjördæmi suður 2003–2007 og tók á ný sæti á Alþingi 2010 og sat út þar kjörtímabil. Eftir það kom hann nokkrum sinnum til þingstarfa sem varaþingmaður Samfylkingarinnar. Hann sat á níu þingum sem aðalmaður og á jafn mörgum þingum sem varamaður, alls á 18 löggjafarþingum á árabilinu 1995 til 2015. Mörður lét sig umhverfismál jafnan miklu skipta og var formaður umhverfisnefndar þingsins um tíma.