- Advertisement -

„Munið þið eftir Samherjaskjölunum?“

Þessi milliverðlagning hefur gríðarleg áhrif á tekjur sjómanna og skatttekjur íslenska ríkisins, enda sýna opinber gögn að Færeyingar fái allt að þrefalt hærra verð en Íslendingar fyrir sama fiskinn.

Óskar Steinn Ómarsson skrifaði:

Andstaða íslenskra útgerða við ESB-aðild snýst ekki um „yfirráð Íslendinga yfir sjávarauðlindinni“. Hún snýst í einföldu máli um þá gríðarlegu fjárhagslegu hagsmuni sem felast í getu íslensku útgerðanna til að svína á bæði sjómönnum og íslensku þjóðinni með því sem kallast milliverðlagning sjávarafurða.

Munið þið eftir Samherjaskjölunum? Meðal skjalanna leyndist tölvupóstur frá Baldvin Þorsteinssyni, Samherjaerfingja, þar sem athæfinu er lýst: „Tilgangurinn er eftirfarandi: Að búa til hagnað innan sölufyrirtækisins þar sem enginn skattur er á hagnað fyrirtækisins. Við teljum Kýpur vera rétta landið. Með því að búa til hagnað innan sölufyrirtækisins Kötlu Seafood getum við lækkað skiptahlut sjómanna og stjórnað betur á hvaða verðum við myndum gera upp. […] Með því að draga úr hagnaði þar og láta hagnaðinn myndast hjá sölufyrirtækinu þá tækist okkur að auka hagnað heildarinnar. Þetta teljum við nokkuð snyrtilega leið til að draga úr skattgreiðslum.“

Þú gætir haft áhuga á þessum

Lækka skiptahlut sjómanna og draga úr skattgreiðslum. Straight from the horse’s mouth.

„Þetta hafa íslenskar útgerðir fengið að stunda um árabil, algjörlega óáreittar af íslenskum skattyfirvöldum. Og þetta vilja þær fá að stunda áfram, eitthvað sem verður ómögulegt fyrir þær að gera ef Ísland gerist aðildarríki Evrópusambandsins. Ástæðurnar eru eftirfarandi:

  • Innleiðing á ATAD (Anti-Tax Avoidance Directive): ESB býr yfir bindandi tilskipunum gegn skattsvikum og gróðatilfærslu. Þessar reglur takmarka verulega getu fyrirtækja til að flytja hagnað á milli landa í lágskattaskjól eða sölufélög erlendis.
  • Sjálfvirkt upplýsingastreymi (DAC): Innan ESB gilda svokallaðar DAC-tilskipanir (Administrative Cooperation). Skattyfirvöld í ólíkum ESB-löndum deila sjálfkrafa og milliliðalaust upplýsingum um skattgreiðslur, milliverðlagningarskýrslur og fjárhagsupplýsingar fjölþjóðlegra fyrirtækja. Þetta gerir rannsóknir á undirverðlagningu mun auðveldari.
  • Samræmdar reglur um markaðsverð (Arm’s Length Principle): Þótt Ísland styðjist við leiðbeiningar OECD hér á landi, fylgja skattyfirvöld innan ESB mun strangara og samræmdara eftirliti til að tryggja að viðskipti milli móður- og dótturfélaga endurspegli raunverulegt markaðsvirði afurða.
  • Reglur um tengd erlend félög (CFC reglur): Ef íslenskt útgerðarfélag á sölufélag í lágskattalandi innan eða utan ESB, gera strangar CFC-reglur ESB það að verkum að hægt er að skattleggja hagnað erlenda dótturfélagsins beint á Íslandi, jafnvel þótt hagnaðurinn hafi verið skilinn eftir í erlenda félaginu.

Þessi milliverðlagning hefur gríðarleg áhrif á tekjur sjómanna og skatttekjur íslenska ríkisins, enda sýna opinber gögn að Færeyingar fái allt að þrefalt hærra verð en Íslendingar fyrir sama fiskinn.

Ég skil ekki hvers vegna ekki er fjallað meira um þetta atriði í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Þá er með ólíkindum að stór hluti Íslendinga sætti sig við þetta ástand og api upp eftir stórútgerðinni að standa þurfi vörð um „yfirráð Íslendinga yfir sjávarauðlindinni“.

Einu yfirráðin sem verið er að verja eru yfirráð útgerðarfjölskyldnanna yfir eigin skattgreiðslum og yfirráð þeirra yfir sívaxandi hluta bæði húsnæðis- og fyrirtækjamarkaðar hér á landi.

Segjum JÁ 29. ágúst.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: