
Sigurjón Þórðarson alþingismaður skrifaði:
„Ég er fylgjandi því að ríkið setji Landsbankanum skýra eigendastefnu hvað varðar vaxtamun og kostnað þannig að bankakostnaður almennings færist hratt og örugglega í átt við það sem hann er í nágrannaríkjunum.“

„Ég fékk þetta bréf frá áhyggjufullum viðskiptavini Arion banka sem býr í litlu þorpi við sjávarsíðuna, en hann sagðist hafa fengið það fyrir örfáum dögum síðan.
Honum fannst sem tónninn í bréfinu væri með þeim hætti að bankinn stæði ekki allt of vel þannig að hann neyddist til að hækka gjaldskrána.
Ég sagði honum að hafa ekki of miklar áhyggjur af bankanum þar sem hagnaður bankans á fyrstu 3 mánuðum ársins hafi verið ríflega 7 milljarðar króna og hafði vaxið verulega samanborið við hagnaðinn á fyrstu 3 mánuðum ársins 2025.
Ég er fylgjandi því að ríkið setji Landsbankanum skýra eigendastefnu hvað varðar vaxtamun og kostnað þannig að bankakostnaður almennings færist hratt og örugglega í átt við það sem hann er í nágrannaríkjunum.“