Stjórnmál

Nissan Micra innkölluð

By Sigrún Erna Geirsdóttir

October 30, 2014

Nissan Micra árgerð 2010-2012 hefur verið innkölluð og er ástæða innköllunarinnar er möguleg bilun í loftpúða bílanna ökumannsmegin. Bilunin lýsir sér í því að möguleiki er á að gasrás sem blása á púðann upp lokist með þeim afleiðingum að húsið sem geymir loftpúðann springi eða brotni og loftpúðinn virki ekki eðlilega, komi til áreksturs.

Á vef Neytendastofu kemur fram að henni hafi borist tilkynning frá BL ehf. um innköllun á Nissan Micra. Um er að ræða 41 bifreiða, árgerð 2010 – 2012. Viðkomandi bifreiðareigendur munu fá sent bréf vegna þessarar innköllunar.

Sjá nánar á vef Neytendastofu.