Greinar

Óboðlegt og fórnin allt of stór með fyrirhuguðu sjókvíaeldi í Seyðisfirði

By Miðjan

October 03, 2026

Umhverfismál:

Aðalheiður Borgþórsdóttir skrifar:

„Fyrir tveimur til þremur vikum buðu norðmenn út ný leyfi til laxeldis í opnum sjókvíum samtals 8200 tonn. Fyrir það þurftu leyfisþegar að borga 25.000 evrur (3,4 millj ISK) Á TONNIÐ.

Á meðan fær Kaldvík 10.000 tonna leyfi (34 milljarða ISKR virði ) ókeypis í Seyðisfirði, í óþökk meirihluta íbúa og 65% allra Íslendinga. Ekki er það okkur íbúunum til hagsbóta að neinu leiti, síður en svo. Laxeldiskvíarnar munu ógna siglingaöryggi, vinnslan mengar fjörðinn, akkerisfestingar kvíanna ógna sæstrengnum og kvíarnar settar upp hvar stór snjó- og aurflóð eru vel þekkt án þess að hættumat vegna slysasleppinga sé gert af fagaðilum.

Sagt er að þetta sé mikil og góð atvinnusköpun! Með leyfisumsókninni eru um 4 störf. Ég vil gjarnan að unga fólkið fái vinnu hér heima og að íbúum fjölgi. Þessi leið er bara óboðleg og fórnin allt of stór.

Þessum yfirgangi ætla ég að mótmæla 11. október kl. 15:00!“