Stjórnmál: Ása Berglind Hjálmarsdóttir þingmaður Samfylkingarinnar skrifar:
,,Ofurvextirnir þjóna fyrst og fremst þeim tilgangi að koma í veg fyrir fall krónunnar. Ef þessi tvö lykilatriði yrðu færð til sama horfs og í grannlöndunum myndi gengi krónunnar hrynja. Að sama skapi myndi Ísland hrynja niður listann yfir ríkustu þjóðir.
Með öðrum orðum eru það viðskiptavinir forstjórans sem halda uppi ofmati á skráðu gengi krónunnar. Og forstjórinn má ekki til þess hugsa að þeir fái að greiða atkvæði um að halda þeim möguleika opnum að losna undan því oki.”