Greinar

Ofsagróði íslenskra leigusala

By Miðjan

April 26, 2026

Húsaleiga: Stefán Ólafsson skrifaði:

„Vissuð þið að leigusala er ein allra arðbærasta starfsemin í landinu? Hún skilar hlutfallslega meiri gróða en bankarnir – og er þá mikið sagt!

En hér getið þið lesið um hinn óhefta leigumarkað á Íslandi sem hækkaði leigu þrisvar sinnum meira en á hinum Norðurlöndunum á síðasta áratug – og það skilaði íslenskum leigusölum ofsagróða.

Efling hefur lagt til við stjórnvöld að taka upp alvöru leigubremsu til að koma leigumarkaðinum í svipað horf og tíðkast í grannríkjunum. Það mun lækka verðbólgu.“