Guðmundur Andri Thorsson skrifaði:

„Ég las grein þar sem Ögmundur Jónasson reynir af nokkurri fimi að sýna fram á hvernig „Auðvaldið“ vilji í raun og veru ganga í ESB. Greinin er væntanlega til heimabrúks, enda mikill meirihluti hugsanlegra kjósenda Vg og flokkanna til vinstri við þau fylgjandi því að taka upp viðræður um fulla aðild. Honum líður ekki vel í félagsskap með útgerðarauðvaldi, þjóðernisíhaldi og einokunarauðhringjum. Ögmundur er eins og maður í KR-búningi sem segist vera Valsari. Hann er eins og maður í kröfugöngu sem segist bara hafa verið á leiðinni út í búð. Hann er eins og maður í gamalli gamanmynd sem komið er að í röngu hjónarúmi og segir, „þetta er ekki eins og það lítur út fyrir að vera“.
Margir hafa undrast það hvernig fólk af hægri og vinstri jaðri sameinast í andstöðu við ESB. Kannski ná þau einmitt saman í andúð á frjálsum viðskiptum. Hægri mennirnir aðhyllast einokun og rétt hins sterka til að neyta aflsmunar og beita bolabrögðum en þau af vinstri kantinum vilja ríkiseigu og ríkisrekstur sem reglu í atvinnulífinu, eru andvíg einkaframtaki, markaðskerfi, arðsemi og gróða, tala um fólk sem stundar viðskipti sem „braskara“. Báðir jaðrar telja Íslendinga fremur eiga heima í félagsskap annarra en evrópskra lýðræðisþjóða.
Regluverk ESB miðast við að tryggja…
En það er kannski alveg rétt hjá Ögmundi að „Auðvaldinu“ sé best borgið innan ESB, þrátt fyrir allt. Ef við notum svo gildishlaðið og neikvætt orð um fólk og fyrirtæki sem starfar við viðskipti og framleiðslu. Innan ESB gefast fyrirtækjum mikil tækifæri en þeim eru um leið settar reglur og mörk sem eiga að stuðla að jafnræði á markaði, þar er stutt við framtak og nýsköpun, eins og íslensk sprotafyrirtæki hafa aldeilis notið góðs af og þar er reynt að ýta undir samkeppni og neytendavernd. Regluverk ESB miðast við að tryggja samræmi á markaði – og þar með sanngirni og jafnræði þar sem því verður við komið – og það held ég að komi öllum til góða, tryggi neytendavernd og hjálpi fyrirtækjum að þróa eftirsóknarverðan varning. Það er svo komið undir hverju og einu þjóðríki að laga þessar almennu leikreglur að aðstæðum í sínum heimalöndum.“
Greinina birti GAT á Facebook.