Ljótt er að ráðafólki sé hótað með svo alvarlegum hætti að lögregla þurfi að hafa afskipti af málinu. Þorgerður Katrín tjáði sig um hótanirnar í viðtali á Bylgjunni. Hún átti erfitt með sig. Sem von er.
Ólafur Ísleifsson sem kjörinn var til Alþingis í kosningum 2017 fyrir Flokk fólksins, og var rekinn úr flokknum eftir að hafa setið að launráðum gegn Ingu Sæland formanni. Þetta kom fram á Klausturbarnum á sínum tíma. Eftir það var hann utan flokka, ásamt Karli Gauta Hjaltasyni, en gekk svo til liðs við Miðflokkinn. Eitt kjörtímabil og þrír „þingflokkar“.
Þorgerður Katrín hefur setið lengst allra núverandi þingmanna og verið í tveimur flokkum. Sjálfstæðisflokknum þar sem hún varð varaformaður og Viðreisn þar sem hún er formaður og utanríkisráðherra. Rof varð á þingmennsku ÞKG við hrunið.
Eftir að hún opinberaði hótanir í sinn garð skrifaði Ólafur Ísleifsson í gærdag:
„Allir sem láta til sín taka í stjórnmálum fá óþægileg skilaboð. Ég þekki af eigin raun, viðleitni til að brennimerkja mig. Það tókst ekki. ÞGK gat sagt frá fyrir viku eða eftir viku. Hún gerði það kortéri fyrir kosningar. Hún veit hún tapar. Má reyna taka grátinn á þetta. Þær verða allar þrjár i óþægilegri stöðu eftir morgundaginn.“