Hér fara fáir hlutar úr nýrri grein Kolbrúnar Bergþórsdóttur á dv.is. Byrjum hér:
„Ólafur Ragnar sagði að vonandi yrði önnur þjóðaratkvæðagreiðsla en sagði enga tryggingu fyrir því að svo yrði. „Í eðli sínu er þetta bara kosningaloforð frá Þorgerði Katrínu að það verði önnur þjóðaratkvæðagreiðsla.“
Ólafur Ragnar hefur réttilega verið harðlega gagnrýndur fyrir þessi orð. En ekki af öllum. Vitaskuld fékk hann stuðning frá formanni Miðflokksins, Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, sem sagði: „Það að fram fari önnur atkvæðagreiðsla er bara yfirlýsing þeirra stjórnmálamanna sem hana gefa. Eins konar kosningaloforð…“
Ómögulegt er að skýra orð Ólafs Ragnars Grímssonar og Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar með því að þeir viti ekki betur. Þeir eru sannarlega ekki heimskir menn. Þeir virðast hins vegar búa yfir dágóðum skammti af ósvífni og auk þess er eins og örvænting sé að grípa þá. Þeir mega ekki til þess hugsa að tapa kosningum þar sem þeim finnst allt vera undir.“
Og endum hér.
„Það þarf alveg sérstakan þankagang til að láta sér til hugar koma að ríkisstjórnin gæli við það að svíkja loforð sitt um þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarsamning við Evrópusambandið. Ólafur Ragnar og Sigmundur Davíð eiga sannarlega ekki í vandræðum með að draga upp þá mynd, enda búa þeir yfir dágóðum skammti af ósvífni. Eins og þeir hafa reyndar ansi oft sýnt okkur.“
Miðjan mælir með lestri greinarinnar allrar, sem má finna hér.
Fyrirsögnin er Miðjunnar.