- Advertisement -

Óli er stór og sterkur – samt algjör bangsi

„Hér birtast niðurstöður könnunar sem Alþingismenn gerðu fyrir stuttu. Þeir settu á blað hvaða kostum ,,andstæðingar“ þeirra eru búnir, stjórnarliðar um stjórnarandstöðu og öfugt.

Þessar niðurstöður, sem ég kalla ..örmæli“, mun ég birta um alla þingmenn ca tvisvar í viku i allt sumar.“

Það er Jón Pétur Zimsen sem birtir:

„Könnunin var gerð nafnlaus og niðurstöður oft skemmtilegar. Við erum mörg vinir þvert á flokka eins og örmælin sanna.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Þó að við séu ekki sammála í einhverjum málum búum við flest ef ekki öll einhverjum mannskostum sem aðrir taka eftir, þetta á einnig við alla Íslendinga.

Munum það að það gleðjast alltaf amk tveir þegar hrósað er verðskuldað fyrir eitthvað, sá sem fær hrósið og sá sem hrósar og það er ókeypis. Tökum eftir hvert öðru í daglega lífinu.“

Gaman væri að þeir sem fylgjast með skrifi eitthvað jákvætt í athugasemdum um Alþingismennina okkar og taki þannig þátt í að gera samfélagið aðeins meira uppbyggilegt en það er í dag.

Ég byrja á þingflokksformönnum stærstu flokkanna á þingi þeim , Guðmundi Ara Sigurjónssyni xS (til vinstri) og Ólafi Guðmundi Adolfssyni xD (til hægri).

Guðmundur Ari (Ari):

  • 1. Virkilega klár stjórnmálamaður, snöggur að greina stöður og mál.
  • 2. Er stórt púsl í góðu gengi Samfylkingarinnar.
  • 3. Hugsjónamaður

Ólafur Guðmundur (Óli Adolfs):

  • 1. Óli er stór og sterkur, bæði í pólitískum skilningi og fýsískt. En samt algjör bangsi, hlýr og notalegur maður sem gott er að tala við og gaman að glensast með.
  • 2. Lausnamiðaður þingflokksformaður sem stendur við orð sín.
  • 3. Uppáhalds Sjálfstæðismaðurinn minn.

Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: