Þarna þurfum við að axla ábyrgð.
Frá Alþingi:
„Mig langaði að víkja að tveimur punktum sem háttvvirtur þingmaður kom inn á. Í fyrsta lagi talaði hún um niðurskurð til rannsókna og þróunar. Það er ekki rétt. Í fjárlögum er gert ráð fyrir ákveðnu umfangi. Þetta er það sem kalla mætti opinn krana, einn af fjölmörgum í fjárlögum, og það fer einfaldlega eftir eftirspurninni hversu umfangsmikill þessi kostnaður er. Það er einungis verið að uppfæra hann á grundvelli spár Rannís um það hversu umfangsmikill kostnaðurinn verður þannig að þarna er enginn samdráttur,“ sagði Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra þegar hann svaraði Ingibjörgu Isaksen Framsóknarflokki.
„Varðandi LSH held ég að það sé mjög mikilvægt, og það er raunar síðari spurning mín, að við veltum fyrir okkur mjög vandlega ramma opinberra framkvæmda. Það er alveg rétt að þetta verkefni hefur farið fram úr tímaáætlunum. Að hluta til er það vegna þess hversu þung í vöfum þessi verkefni verða vegna reglna sem settar eru hér í þessum sal. Þarna þurfum við að axla ábyrgð. Ég mun síðar á þessu þingi koma fram með frumvarp til laga um fjárfestingar ríkisins sem beinlínis hefur það að markmiði að koma betri aga á þessi verkefni. En við þurfum að huga að fleiru og ég vænti góðs samstarfs við háttvirtan þingmann og hennar kollega um þessar umbætur.“