Fréttir

Ósamræmi í gjaldtöku hjá Play: Rukka meira en verðskráin segir til um

By Ritstjórn

June 23, 2022

Farþegar á Keflavíkurflugvelli þurfa í flestum tilvikum að borga aukalega fyrir að innrita farangur og velja sér sæti, eins og segir í frétt frá turisti.is.

Kemur fram að hjá Icelandair hefur þessi gjaldtaka verið að aukast umtalsvert á síðustu misserum, og stjórnendur Play hækkuðu farangurs- og sætagjöldin fljótlega eftir að félagið hóf sig á flug.

Síðan þá hafa gjöldin verið óbreytt í Evrópuflugi Play samkvæmt verðskrá sem félagið birtir á heimasíðu sinni, en þar segir að farþegar borgi í mesta lagi 5.083 krónur fyrir að innrita farangur; aldrei meira en 4.089 krónur fyrir handrangur.

Ekki er þó allt sem sýnist.

Þessi gjöld geta verið umtalsvert hærri; farþegar á leið til Tenerife eru þannig rukkaðir um allt að 5.681 krónur fyrir hverja tösku sem, sem er 12 prósentum yfir hámarksverðinu sem tilgreint er á heimasíðunni.

Þá getur gjaldið fyrir handfarangur farið nærri 500 krónum upp fyrir mörkin, og Play rukkar stundum meira fyrir val á sætum en verðskráin segir til um.

Sem dæmi má nefna að farþegi sem vill sitja fremst í vélinni á leiðinni til Alicante þarf að borga 5.130 krónur fyrir slíkt; jafnvel þó hámarksverðið ætti að vera 4.600 krónur.

Nadine Guðrún Yaghi samskiptastjóri Play.

segir Nadine Guðrún Yaghi samskiptastjóri Play um skýringar á þessu að það það eigi eftir að uppfæra verðskrána í samræmi við verðstýringu flugfélagsins; unnið sé að lagfæringu.

Farþegar Play verða því samkvæmt þessu – enn um sinn að minnsta kosti – að gera ráð fyrir að borga meira fyrir val á sætum og farangur en áður var.