Fréttir

Óskiljanlegt orðasalat

By Miðjan

April 04, 2026

Alþingi: Árni Helgason, varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins, spurði Þorgerði Katrínu utanríksiráðherra, um áhrif hagræðingartillagana starfshóps ríkisstjórnarinnar hafi verið hjá utanríkisráðuneytinu.

Mbl.is birtir hluta svars utanríkisráðuneytisins:

„Varðandi áhrif tillagnanna á starfsemina á árinu 2025 er vert að benda á að það ár var starfsemi ríkisaðila í samræmi við þágildandi ársáætlanir á grundvelli fjárlaga þess árs. Fjárlög fyrir árið 2025 gerðu ráð fyrir almennri hagræðingu upp á 2,2 milljarða kr. innan ársins og 8,2 milljarða kr. sértækri hagræðingu fyrir ríkisaðila í heild. Þar sem tillögurnar voru ekki samþættar inn í fjárlög fyrir árið 2025 liggur ekki fyrir hvaða hagræðing hafi náðst vegna tillagnanna á árinu 2025,“ segir meðal annars í svari ráðherrans.