Greinar

Ráðherra fagnar sturlun

By Miðjan

February 13, 2026

Umræðan/Facebook: Gunnar Smári skrifaði:

„Fjármálaráðherra lýsti því sem heilbrigðismerki íslensks efnahagslífs að hagnaður bankanna (Arion, Landsbanki, Íslandsbanki, Kvika) hafi verið um 100 milljarðar í fyrra. Það eru rúm 2% af landsframleiðslu ársins. Ein króna af hverjum fimmtíu sem velta um hagkerfi enda sem hreinn hagnaður í bönkunum. Þetta er ekki heilbrigðismerki heldur hrein sturlun. Hvergi í veröldinni myndi fjármálaráðherra fagna slíku. Og engin þjóð hér í heimi myndi sætta sig við að vera blóðmjólkuð með þessum hætti. 100 milljarðar á ári jafngilda því að hver fjögurra manna fjölskylda hafi fært bönkunum eina milljón í hreinan hagnað. Hafði þín fjölskylda ekkert betra að gera við þessa milljón?

Á sama tíma er bráðadeild Landspítalans að falla saman, það sárvantar úrræði fyrir ungmenni með geðraskanir og um sex þúsund börn búa við sárafátækt.“