Greinar

Ráðherra vill að blankir kaupi druslurnar

By Miðjan

October 22, 2020

Áður sögðust vinstri græn vera sósíalísk. Ef ég man rétt. Nú er öldin önnur. Varaformanninum og umhverfisráðherranum er mikið í mun að leggja á nýjan skatt. Skatt sem allir borgi jafnt. Jafnvel að þau fátækustu borgi mest. Jafnvel langmest. Hann vill að lagður verði á hörku skattur á þá sem hafa ekki efni á að eiga rafmagnsbíl. Vill skattleggja bensín og díselbíla sem mest hann getur.

„Það er vissu­lega farið inn á það að skatt­lagn­ing sem þessi getur bitnað mis­mun­andi á fólki, það er alveg hár­rétt,“ segir varaformaður Vinstri grænna.

Hann sér tækifæri fyrir fátæka fólkið. Það mun hafa þennan kost: „Mark­að­ur­inn í þessu er allur að breyt­ast. Það eru að koma fleiri not­aðir bílar inn á mark­að­inn og svo fram­veg­is.“

Flóknara er þetta ekki. Skattleggja almúgann svo hann kaupi notuðu bíldruslurnar sem ríkisbubbar og efnamenn vilja ekki lengur. Bingó!