- Advertisement -

Ragnar segir NEI!

Ragnar Önundarson, fyrrum bankamaður, skrifaði:

„Ég mun segja NEI, einkum af þessum ástæðum:

  • Evran er markmið Jáfólks. Þangað er löng leið. Krónan hefur verið stöðug síðan hún var sett á flot, taka ber tillit til þess við ákvarðanir.
  • Sveigjanlegur, eigin gjaldmiðill er samt enn mikilvægt verkfæri sem grípa má til ef gjaldeyrisaflandi greinar verða fyrir áföllum. Að fyrirtækin lifi af er dýrmætt.
  • Ef fyrirtæki fer í gjaldþrot tvístrast starfsfólkið og þekking þess, eignir eru seldar, þær tvístrast, viðskiptavinir og birgjar hverfa, tvístrast.
  • Það er þrekvirki að stofna fyrirtæki og gera það lífvænlegt. Sú manngerð er ekki “á hverju strái.” Við gjaldþrot missa stofnendurnir, frumkvöðlarnir, ekki bara eigur sínar, þeir missa kjarkinn. Það er kannski mesta tjónið.
  • Að hafa ósveigjanlegt gengi “afvopnar” stjórnvöld.
  • Að rétta rekstur gjaldeyrisaflandi greina af með lækkun gengis hindrar mikið atvinnuleysi og tryggir nýtingu framleiðslutækja, sem annars mundu stöðvast. Atvinnuleysi er mesta og versta böl sérhvers samfélags, forðumst það.
  • Ef gengið lækkar ekki við áföll heldur stór hluti landsmanna lífi sínu og neyslu áfram eins og ekkert hafi í skorist. Viðskiptahalli myndast, landið safnar skuldum. Þeir sem missa vinnuna bera byrðarnar einir.
  • Ef gengið er sveigjanlegt verður viðsnúningurinn snöggur þegar birtir til á ný. Með evru tæki langan tíma að reisa atvinnuleysið úr rústum. Landið drægist aftur úr öðrum þjóðum hvað velsæld og velferð snertir.

Kjarni málsins er sá gjaldeyris-uppsprettur landsins eru fáar. Ef samdráttur verður í heimsbúskapnum, sem reynslan sýnir að gerist öðru hvoru, þá getur orðið samtímis lækkun á afurðaverði og fækkun ferðamanna. Í versta falli gæti þetta gerst samtímis aflabresti. Þá yrði mikilvægt að hafa eigin gjaldmiðil, sem héldi fyrirtækjunum gangandi, lifandi. Þá tækju íbúar landsins áfallið saman. Að þeir sem missa vinnuna beri hitann, þungann og sársaukann einir er ekki sanngjarnt. Samdrátt í þjóðartekjum á þjóðin að taka saman.“

Þú gætir haft áhuga á þessum

Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: